Síðasta opnunarhelgi Kerbúðarinn er Versló helgin

Kerbúðin hefur vakið athygli og margir hafa lagt leið sín þangað til að versla, jafnvel aðkomufólk þekkir búðina og margir hafa lagt við rafhliðið og labbað í búðina til að kaupa. Næsta helgi er síðasta opnunarhelgin og því hefur „Mamma terta“ ákveðið að bjóða upp á bökunarþema á laugardeginum og nýtur hún aðstoðar mömmu sinnar sem er ekki síðri terta….)).

Þær mæðgur ætla að poppa upp stemminguna í eldhúsinu í sveitinni og baka kökur, pönnukökur, kleinur og ekki má nú gleyma vöfflunum sem verða tilbúnar þegar „Barna Ólympíuleikunum“ lýkur og því þarf að vera með tímasetningu á hreinu. Ekki má gleyma að það er ýmislegt fleira sem fæst í búðinni og vonandi gefið þið ykkur tíma til að kíkja. Tóta á þakkir skilið fyrir hennar framlag í okkar góða krúttlega samfélagi.

 

Það er ekki öllum allt til lista lagt og það verður að segjast eins og er að fréttaritarinn er eiginlega alsæl að hún var ekki fengin í verslóverkið…))