Versló 2017 – arinkubbaeldur

Þrátt fyrir að engar sérstakar auglýsingar hafi verið sendar út um formlega dagskrá um varðeldinn þá tók Elfar það að sér að bera hann á bakinu og fuðra upp í honum. Smá skilaboð á fésinu sem birt voru um að planað væri að hittast kl. 20:00 í Gilinu urðu til þess að hópur fólk mætti og úr varð hin mesta skemmtun ekki síst fyrir það að Reynir mætti með kassagítarinn og lagið var tekið.

Eftirfarandi myndir tók fréttaritarinn en fleiri myndir eru á hópnum Kerhraunarar, takk fyrir skemmtilegt kvöld og látum þetta nú ekki gloprast niður og hittumst að ári í Gilinu.

 

Brennuvargurinn Elfar lét ekki sitt eftir liggja að tendra arinkubbaeldinn


Þessir tveir hafa fengið viðurnefnið „Stigamennirnir“ eftir aðkomu þeirra við gerð göngustígsstigans

Afkomendur Reynis voru stór hluti þess hóps sem mætti og alltaf jafn skemmtilegt að sjá þau


Sjaldgæf sjón „ungur maður með farsíma“


Sig- og Guðrún


„Hin fjögur fræknu“


„Hin fjögur fræknu“ og gítarspilarinn


Alltaf jafn glaðlegur vegamálastjórinn og frúin lifir sig inn í sönginn


Hundalíf


Fríður & viðhengin


+ fleiri viðhengi


Ómar stjónarmaður dáist að sinni konu syngja


Reynir, takk fyrir að nenna að spila fyrir okkur


Spurning hvað unga manninum fannst um þetta brölt í okkur en Hörður skeiðar á svæðið


Stína með kynningu á afkomendunum


Sko mína, bara orðin 60 ára…))


Björn og Fríða

Fanneyjar leggur lét sig ekki vanta


Familí 50 mætti á svæðið í fyrsta sinn og ekki það síðasta

Í lok vel heppnaðar helgar þakkar stjórnin öllum þeim sem lögðu leið sína á
barna „Olympíuleikana“ og á arinkubbaeldinn og hlakkar til Verslío 2018