G&T dagurinn verður haldinn laugardaginn 29. maí nk


Eftir viku er komið að því að hittist á þessum merka degi G&T deginum og varð laugardagurinn 29. maí fyrir valinu. Þessi hittingur hefur verðið hin mesta skemmtun fyrir þá Kerhraunara sem mætt hafa og lagt sitt að mörkum að fegra Kerhraunið. ,Það er ekki bara að gróðursetja heldur líka að viðhalda því sem gert hefur verið sem er ekki síður mikilvægt. Það er nauðsynlegt að sem flestir leggi eitthvað að mörkum til að svæðið okkar dafni og vaxi.

Sýnum samhug og mætum.

Samtals fara 602 tré niður í Kerhraunið þar af 80 í sameiginlega svæðið og til þess að þetta gangi vel fyrir sig þarf mannskap og gaman væri að fá að sjá ný andlit í hópnum.

Nákvæmari tímasetningar ásamt afgreiðslu trjáa og moldar fljótlega og gott ef fólk gæti tekið tré sem fyrst þegar auglýst verður.

Takið frá daginn og mætum sem flest og höfum gaman af og endum í pyslum og meðv´í.