Aðalfundur verður haldinn 11. apríl nk. og hefst kl. 19:30

Stjórn Kerhrauns, félags sumarhúsaeigenda boðar hér með til aðalfundar félagsins árið 2023.

Fundurinn verður haldinn ÞRIÐJUDAGINN 11. apríl nk. í húsnæði Rafmenntar að Stórhöfða 27, (gengið inn að neðanverðu), 110 Reykjavík og hefst stundvíslega kl. 19:30.

Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum félagsins:

1.     Skýrsla stjórnar og umræður um hana.

2.     Framlagning ársreikninga 2022 til samþykktar

3.     Kosning formanns.

4.     Kosning annarra stjórnarmanna.

5.     Kosning varamanna.

6.     Kosning skoðunarmanns og varamanns hans.

7.     Framkvæmda- & félagsgjald 2023 lagt fram til samþykktar.

8.     Önnur mál.

a. Stjórn félagsins leggur til breytingar á samþykktum félagsins:

1. Breyting á 1. grein:  Nafn félagsins verði Kerhraun, félag frístundahúsaeigenda, Grímsnesi.

2. Breyting á 5. grein:  Til aðalfundar aðalfundar skal stjórnin boða með sannanlegum hætti, bréfi/tölvupósti og/eða með auglýsingu á heimasíðu félagsins, www.kerhraun.is með minnst 10 daga fyrirvara.

3. Breyting á 10. gr. varðandi birtingu samþykkta.  Í stað þess að senda nýjar samþykktir bréflega til félagsmanna er lagt til að birting uppfærðra samþykkta á heimasíðu félagsins sé fullnægjandi.

ATH! Uppfærðar samþykktir (tillögur) voru sendar í tölvupósti.