Stafafurur – seinni haustgróðursetning 2020

Seinna hollið sem tók að sér seinni haustgróðursetninguna laugardaginn 26. september var hópur reyndra mannna og einnar kjarnakonu, auðvitað var Græna þruman mætt til að létta undir og til að fá smá orku í hópinn í þessari heljarinnar rigningu kom Guðrún með smá bensín á liðið og súkkulaði. Allir urðu ánægðir með það að eiga sjéns á því að fá bensín þegar fylla þurfti mold á skófluna….))))

Hópurinn vann hratt og örugglega enda með sigurvegara síðasta golfmóts innanborðs sem sveiflaði skóflunni af mikilli lipurð, Lúlla okkar sem alltaf mætir og telur ekki eftir sér að láta gott af sér leiða, 0rkuboltana Jón og Hörpu sem er sannkallaðir gleðigjafar, Sveinbjörn nýbúi með barnabarnið (man ekki nafnið) en hörkuduglegur lærlingur.

Fanný formaður birtist út úr þokinni, tók út verkið og myndaði í hópinn bak og fyrir.

Ingólfur skóflu-sveiflari

Lúlli er líka laginn með skófluna 

Lúlli með seinni sveifluna og nb, hann er líka golfari

Harpa gleðigjafi


Jón gleðigjafi

Sveinbjörn nýbúi niður-rigndur

Þessi mynd var sérstaklega tekin til að senda á Lovísu með þeim skilaboðum að
Lúlli væri ekki á leiðinni heim


Þetta er bensínpása en Sveinbjörn fékk bara súkkulaði afþví hann var á heimleið


Afgangar: trjámaturinn og trjáklæðin


Það mætti halda að þeir væru í ræktinni alla daga


Ég hljóp á mig með því að segja „duglegir, annars fáið þið ekki neitt“


Lúlli, „ok, ég er farinn heim“ og ég dró í land..))


Fegurðardísir þessar furur

 


Jón með lærlinginn í kennslu


Hann stóð sig vel drengurinn enda ungur og sprækur sem lækur


Mikið var nú gaman að hittast og klára þetta verkefni sem leiðir til þess að Kerhraunið okkur verður enn fallegra,færi ég öllu þessu frábæra fólki mínar innilegustu þakkir fyrir hönd stjórnar og hlakka til að hitta þau aftur.