Kraftur vorsins – Ólafur Kr. Þórðarson orti ljóðið árið 1942

Til heiðurs Sölva Breiðfjörð okkar nýhætta formanni en Ólafur er afi hans.

Kraftur vorsins

Vorið er komið vængjaþytur breytist
varplöndin fyllast andakliður vaknar.
Um andvökunætur ekki lengur heyrist,
enginn á foldu vetrarkuldans saknar.

Nóttin er styttri, stórir vetrarkuldar,
stríða ei lengur inn um bæjardyr.
Inn milli voða, verndarvættir huldar
veita nú hlýju og náðarkrafti byr.

Gaman á vorin þá vetrardróma leysir,
víðsýna æskan ýtir fram á svið.
Alfaðir traustur aumum bústað reisir
sem aldreii hafa búið gleðina við.
Njótum þess tíma sem eftir er af páskunum og komum heil heim.