Tóta myndaði og úr varð bráðskemmtileg syrpa sem gæti heitið „Hvað þarf marga menn til að taka mold úr poka“, eða „Hvað þarf marga menn til að taka út holu fyrir tré“, eða bara „Hvað þarf marga menn til að aðstoða Guðrúnu“?.
Sagan hefst á því að Guðrún sem tók að sér að vera gröfustjóri í fjarveru Finnsa mætti á staðinn og þá voru mættir þeir, Hörður, Ágúst og Björn. Til að hafa það alveg á hreinu þá byrjaði Guðrún á því að segja drengjunum að vildu þeir fá skófluna upp, þá skyldi þeir lyfta vísfingri upp og gera smá hringi með honum og þá setti hún skófluna upp. Eru þeir að taka hana alvarlega, nei.
Alltaf að byrja á því að athuga hvað er í svona poka, ok
Þetta er bara alveg að virka með 4 mönnum og fyrsta verk, pokinn á hliðina
Voða gott að hafa pokann fyrst á hliðinni og lyfta honum svo þá svínvirkar þetta
Gröfustjórinn áhyggjufullur að grafan steypist fram fyrir sig með allri þessari mold.
Það hefði nú mátt greiða sér áður en haldið var úr húsi::)
Þetta gekk eins og í sögu og nú skal haldið í´ann og gróðursett, fyrst að laga eftir sig
Sorry Björn ég þurfi bara aðeins að bregða mér frá, ekki skamma mig, ég er að mynda þig..)
Allir komnir á hné og byrjaðir að afklæða fururnar, Gústi festir á filmu
Vá, hér er eitthvað að gerast, er ekki allt í lagi?
Það er óhætt að koma með tré í þessa holu enda Hörður toppmaður, hann heldur í toppinn;;)
Svakaleg fær þessi hola mikla athygli, bara fjöldi manns að kanna málið
Ást og ummhyggja er þessi kölluð
Það er mikið atriði í gróðursetningu að gá fyrst vel hvort holan sé tilbúin til notkunar eða bara of stórar
Þeir hafa úr nægri mold að moða og líta sko ekki upp þó ég þusi
Meðan drengirnir gróðursetja þá er frúin á 55 að fæða grenitrén enda veitir ekki af
Verðandi TRAMBÓLÍN býður eftir að verða komið fyrir
Þá er þessum hluta lokið og það tekur annað við
Já, ég veit það, ég verð að muna að greiða mér
Þá er myndasýningu Tótu lokið og enn og aftur, takk Tóta og takk þið hin.