17. júní 2015 – Þjóðhátíðardagur Íslendinga

Hinn 17. júní 1944 varð Ísland lýðveldi, sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar var formlega lokið. Ákveðið var að stofna lýðveldið við hátíðlega athöfn á Þingvöllum á afmælisdegi Jóns Sigurðssonar forseta. Lýðveldishátíðin var í hugum flestra viðstaddra ógleymanlegur viðburður og andrúmsloftið á Þingvöllum þennan sögulega rigningardag var magnað.

Hvað sem öllu líður þá höldum við Kerhraunarar daginn hátíðlegan og tökum hressilega undir í eftirfarandi lagi.  https://www.youtube.com/watch?v=n82uMVlkpws