Senn koma jólin, en jólaandann er ekki hægt að kaupa

Best er að byrja snemma að skipuleggja það sem gera þarf fyrir jólin, stilla væntingum í hóf og gera ekki óhóflegar kröfur á sjálfan sig og aðra til að jólahátíðin verði sem best heppnuð. Flestir ef ekki allir eru í eðli sínu mikið jólabarn og eiga líka flestir afar góðar minningar frá sínum æskujólum. Í hugum margra snúast jólin um fólkið sem er í kringum mann, að minnast látinna ástvina og senda jólakort til fólks sem hefur fylgt með manni með einum eða öðrum hætti á árinu og sýna þannig þakklæti sitt.

Flestir hafa líka sína eigin „jólahefðir“ eða sameiginlega „jólahefð fjölskyldunnar og það gæti verið gaman að rifja upp hverjar eru bestu jólaminningar okkar úr æsku og deila minningunni með fjölskyldunni og reyna að komast hjá því að gera of mikið í aðdraganda jóla sem gæti aukið á streitu og dregið úr líkum á vel heppnaðri hátíð.

 

.

Hér eru nokkur góð ráð til auka líkurnar á ánægjulegu jólahaldi:

  • Forðastu að gera þér óraunhæfar væntingar. Til dæmis varðandi matinn, eigin líðan, útlit, gjafir, hvernig aðrir og þú sjálfur átt að vera. Dragðu úr væntingunum og leyfðu jólunum að koma.
  • Vertu raunsær. Við höfum ekki tíma til að gera allt og ekki peninga til að framkvæma og kaupa allt sem okkur langar til.
  • Forðastu að gera smámuni að aðalatriðum jólanna. Ekki örvænta þótt þú þurfir að sleppa jólakortunum eitt árið eða ef gólfin voru ekki bónuð.
  • Byrjaðu snemma að undirbúa jólin. Jólaundirbúningur sem hefst 22. desember veldur óhjákvæmilega streitu og uppnámi.
  • Skrifaðu lista yfir allt sem þú vilt gera fyrir jólin og byrjaðu strax á því að strika helminginn út. Flokkaðu úr það sem skiptir mestu máli.
  • Finndu hvað jólin eru fyrir þér, hvaða þýðingu þau hafa og hvaða minningar eru þér kærastar frá jólum.
  • Forðastu að láta auglýsingar segja þér hvað þurfi til að halda hin fullkomnu jól. Rándýrir tónleikar eða dýrar gjafir eru ekki kjarni hins sanna jólaanda.
  • Pör geta haft mismunandi hugmyndir um jólahald. Gerið málamiðlanir og blandið saman jólahefðum úr báðum áttum.
  • Jólin geta verið mörgum erfiður tími. Þeim sem líður illa líður oft enn verr á jólum. Jólin eru tími til að huga að náunganum og gefa af okkur til þeirra sem eru ekki eins lukkulegir.
  • Hugaðu vel að börnunum og búum til góðar minningar fyrir þau. Erfitt er fyrir jólaandann að birtast þegar andrúmsloftið er þrúgað af streitu og kvíða yfir væntingum sem ekki er hægt að uppfylla.
  • Notaðu tímann í desember til að líta yfir farinn veg og fram á veginn. Ákveddu hvaða reynslu og minningar þú vilt taka með þér inn í nýtt ár og hvernig þú vilt breyta til betri vegar.
  • Njóttu augnabliksins og mundu að það þarf lítið til að mynda jólastemningu. Kveiktu á kerti, bakaðu eina sort, hitaðu kakó og spilaðu huggulega tónlist.
  • Mundu að klisjan um að hugurinn skipti mestu máli þegar gefnar eru gjafir, stendur alltaf fyrir sínu.