Laugardagurinn 5. júní 2010

Gróðursetningar- og tiltektardagurinn rann upp bjartur og fagur enda orðin hefð fyrir því að veðrið skarti sínu fe

 

Gróðursetningar- og tiltektardagurinn  rann upp bjartur og fagur enda orðin hefð fyrir því að þegar Kerhraunarar hittast að veðrið skarti sínu fegursta. Í þetta skiptið skipulögðu daginn Sóley, Anna María, Torfi og Steini og eiga þau þakkir skilið fyrir þeirra frábæra framlag.
.
Markmiðið með þessum degi var tvíþætt, hreinsa svæðið og gróðursetja plöntur en þar sem svæðið er mjög snyrtilegt þá lá eingöngu gróðursetning fyrir.
 Smári byrjaði um 10:00 að grafa holurnar en í ár var gróðursett ar 20 aspir og 20 stafafurur var hafist handa við gróðursetninguna og myndirnar hér að neðan tala sínu máli hvernig til tókst. Takk fyrir gróðursetningarlið.
Á slaginu kl.11:00 fór fólk að drífa að úr öllum áttum  

Við lukum svo góðum degi með því að grilla saman og auðvitað vara skálað fyrir Garðari sem splæsti bjór á okkur og honum þökkuð þessu himnasending.

Ég þori að fullyrða að allir fóru til síns heima sælir og glaðir.