Jólakveðjur til Kerhraunara 2016

jolin-2016

Nú eru aðeins örfáir dagar til jóla og aðventan leið alltof, alltof hratt enda veðráttan þannig að jólin virtust vera órafjari. Margir velta nánast alltaf fyrir sér hvernig komandi jól muni nú verða en svarið liggur innra með okkur hverju og einu. Þau verða gleðileg ef við óskum þess og sjáum björtu hliðarnar í lífinu. Mörgum reynist það erfitt og sjálfsagt er það alltaf svo að skuggi hvílir yfir jólum einhverra. Þá skiptir máli að leita í ljósið og leita ljóssins. Hugarfarið skiptir svo miklu og getur létt okkur lund ef við lærum að skilja allt hið góða í kringum okkur þótt í smáu sé.

Það er margt sem glepur og dregur athyglina frá því jákvæða. Jólaboðskapurinn er fullur gleði og vonar og undir það geta allir tekið. Um jól er okkur öllum hollt að leita inn á við og skoða. Breyta má hegðun okkar sjálfra svo betur fari. Kærleikurinn er boðskapur jólanna. Af honum er sjaldnast nóg. Kristur boðaði hið gullna lögmál að menn skyldu koma svo fram við hver við annan eins og þeir sjálfir vildu láta koma fram við sig. Þarna er kjarni kærleikans fólginn.

Jólin 2016 verða vonandi öllum eftirminnileg og sérstaklega ykkur kæru Kerhraunarar, leiðið samt hugann að því að margir geta ekki haldið jól aðstoðarlaust og því er rétt að brýna þá sem betur mega sín að muna eftir þeim sem erfiðara eiga því til þeirra þarf jólaboðskapurinn líka að ná. Látum anda jólanna ná tökum á okkur öllum.

Kæru Kerhraunarar, innilegar jólakveðjur til ykkar allra. Megi jólin verði ykkur gleðileg í faðmi vina og vandamanna og þau ykkar sem glíma við veikindi munið örugglega sjá fram á bjartari tíma á komandi ári. Látum jólaljósin lýsa okkur inn í framtíðina, og tökum fagnandi á móti nýju ári með öllu sem það hefur upp á að bjóða.