Andlátsfrétt

6. október 2019 lést Haraldur Hafsteinn Ólafsson eða Haddi eins og við Kerhraunarar vorum vön að kalla hann, Haddi var einn af frumbyggjum Kerhraunsins. Haddi og eiginkona hans Halldóra Bjarney Þorsteinsdóttir eða Gógó eins og hún var alltaf kölluð (lést 2010) keyptu lóð nr. 13 í Kerhrauni fyrir allavega 25 árum og eyddu ekki ófáum stundum við að byggja sér fallegt sumarhús og gróðursetja.

Haddi var fróður um Kerhraunið og oft gott að leita upplýsinga hjá honum um fyrstu ár Kerhraunsins

Haddi og Gógó stóðu vel undir því að vera kölluð „Frumbyggjar Kerhraunsins“ og á stundu sem þessari senda Kerhraunarar hlýjar kveðjur til ástvina.

Kæra fjölskylda, börn og barnabörn, við vottum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur.

 

Sárt er vinar að sakna.
Sorgin er djúp og hljóð.
Minningar mætar vakna.
Margar úr gleymsku rakna.
Svo var þín samfylgd góð.