Fjölskylduhátíð Kerhraunsins „VERSLÓ 2016″ verður laugardaginn 30. júlí nk. Hátíðin hefur verið vel heppnuð undanfarin ár og hafa Kerhraunarar og fjölskyldur þeirra sýnt sig og séð aðra þessa helgi í Kerhrauninu og skemmt sér.
MINI Ólympíuleikarnir 2016 hefjast stundvíslega kl. 13:00, stundvíslega kl. 13:00 við gatnamótin hjá Ása og fjölskyldu, fyrir þá sem nýjir eru þá er beygt til hægri þegar beini kaflinn endar, síðan er aflýðandi beygja og þar er Heimaey á vinstri hönd og næsta hús er leikvangurinn. Þar skemmta börn og fullorðnir sér og um kvöldið verður tendraður „arinkubbaeldur“ og verðlaun veitt þeim börnum sem tóku þátt í Mini Ólimpíuleikunum.
Eins og áður hefur komið fram þá hittumst við í Gilinu um kl. 20:00 og tendrum eld og hver veit nema einhverjir gleðigjafar komi og taki nokkur lög enda engin ástæða til annars en að skemmta í tvo tíma eða svo.
Muna ekki allir eftir þessum VARÐeldi?