Versló er alltaf skemmtileg hvernig sem viðrar, hversu margir mæta eða hvort eitthvað er í boði, það er bara gaman að hittast og kynnast öðrum Kerhraunurum. Í ár var veðrið mjög gott og margir lögðu leið sína í Gilið til að skemmta sér og það skemmtilega var að í þetta skiptið mátti sjá mörg ný andlit sem ekki hafa sést áður en mörg þessara andlita eru nú Kerhraunarar.
Myndasjóður minninga um skemmtilega Versló og skemmtilega tíma í Kerhrauni er alltaf viðhaldið og gaman að setja inn eftirfarandi myndir af þeim sem mættu.
Öryggisvoffi Rekstrarvara
Eyjabólsfjölskylda og ættmóðurin hér að neðan -Fanney bleika
Þessi búin að vera gift í ár – húrra fyrir þeim
Fanný mjög íbyggileg á svip og „skál“ Hörður
Lúllí og Lovísa – Lúlli, eru ekki einhverjar góðar myndir sem þú lumar á?
Forstjóri Kerbúðarinnar hún Tóta sæta
Alltaf glaður hann Guðbjartur, gamil stjórarmaðurinn
Elín formannsfrú í stuði
Fjölskylda Guðbjarts og Svönu
Nýjir eigendur af húsi á lóð 23 – mössuðu ratleikinn
Hér að neðan er gott dæmi um að það er best að vera bara rólegur og leyfa myndatöku
Sumir halda að þeir geti flúið „Ömmu myndar“ en svo er ekki, því þá ertu ekki hundeltur
Já og ekkert að skella sér niður, þú sést fyrir því
Vegamálastjórinn er í miklu uppáhaldi
Geiri rannsóknarlögga er kátur í kvöld
Stína, Kerhraunsbjúdí
Hér er all stór hópur – Rut og Smári í baksýn með gengið sitt
Reynir stuðbolti til í tuskið eins og alltaf
Arineldurinn gerði það að verkum að auðvelt var að grilla sykurpúða
Formaðurinn hélt smá ræðu áður en verðlaunaafhendingin hófst
Eru ekki allir í stuði? Heimaeyjarfólk
Tvær úr tungunum, nei, þessar voru komnar til að skemmta sér
Sölvi er alltaf jafn sætur
Man ekki eftir að hafa heyrt þessi tvö syngja en það getur samt alveg verið
Fríður grillar fyrir tvíbbana
Hvað umræður skyldu nú vera í gangi hér, örugglega að bjarga Íslandi
Darri er einn af Eyjamönnum sem mun halda uppi fjörinu að ári
Pabbi hans Darri kemur örugglega aftur
Þegar formaðurinn og hans fjölskylda höfðu lokið við verðlaunaafhendinguna þá var komið að því að gefa aðeins í. Reynir og Ási tóku því upp gítarana og söngbókum var dreift og hugmyndin var að hafa fjöldasöng. Fjöldasöngur varð það aldrei og næsta ár vill stjórn sjá Eyjafólk með í gaulinu, þeir eru þekktir fyrir það að geta sungið…))).
Þeir sem sungu hvað mest fíluðu þetta í botn og vildu meira en hinir sem höfðu bara gaman af að hlusta gerðu það svo sannarlega.
https://www.facebook.com/100000127644565/videos/o.188020261369018/1125616304119280/?type=2&theater
Þessar krúttbommbur hér að neðan, Ási og Reynir eiga þakkir skilið fyrir skemmtilegt kvöld – Takk, takk
Hlustið hér smá stund á þá félaga
Þessar konur lögðu til að uppáhaldslagið þeirra væri sungið en „Amma myndar“ náði svo ekki að taka það upp sem ekki verður það sýnt hér nema einhver annar eigi það á vídeó.
Aftur á móti náði hún að trufla söngvarann þannig að hann steinhætti að spila og því náði hún á vídeó….))
https://www.facebook.com/100000127644565/videos/o.188020261369018/1125878624093048/?type=2&theater
Allt sem er gaman líður svo fljótt en það er alltaf stefna Kerhraunara að hætta á hápunkti og það var gert í þetta skiptið, nú er bara að láta sig hlakka til næstu Versló.
„Að sama tíma að ár“ þá sjáumst við hress og kát og stjórn þakka ykkur fyrir skemmtunina.