Það verður ekki hægt segja að veðrið hafi til þessa verið að angra okkur Kerhraunara enda erfitt að trúa því að veturinn sé í rauninni ekki kominn, hvað sem því líður þá er margir kostir við það, sérstaklega það að ekki hefur þurft að eyða miklu í snjómokstur en svo er það spurningin hvort þetta sé gott fyrir gróðurinn en það verður bara að koma í ljós.
Fyrri myndin er tekin rétt upp úr kl. 11:00 og sú seinni um kl. 15:00 og er eins og haustlitirnar sé að prýða landið en fallegt er það.