Gleðilegt sumar KERHRAUNARAR

Það er komið sumar – sólin bræði hrím, vetur burtu farinn, tilveran er fín!

Ekki það, mér finnst tilveran fín jafnt að vetri sem sumri, en það er alltaf góður siður að óska fólki gleðilegs sumars. Þessi árstími er svo yndislegur. Lífið vex og blómstrar, dagarnir eru langir og bjartir, öll tilveran iðar. Öll framtíðin virðist augljóslega verða björt og falleg á svona stundum.

Það er gott að gleyma sér í Pollýönnu hugsunum og gleyma dimmu köldu vetrarnóttunum sem standa allan sólarhringinn. Það er nægur tími fyrir þær seinna þegar veturinn kemur aftur. En þá er gott að geta yljað sér við hlýjar minningar vorsins og góðra sumardaga. Svo það er um að gera að safna nægum fallegum minningum í sarpinn.