Nú geta allir farið að hlakka til VERSLÓ

Enn og aftur kemur frétt um framfarir í Kerhrauninu, nú er það útivistarsvæðið í Gilinu sem hlýtur þann heiður á fá til sín setbekki sem eru þeim kostum gæddir að vera úr 100% náttúrulegu efni og það verður spennandi að fylgjast með þegar Kerhraunarar fara að mæla sér mót við bekkina í Gilinu og ræða málin.

Allavega verður stuð á bekkjunum um Versló sem „Amma myndar“ missir af í ár og er strax farin að finna fyrir saknaðartilfinningu aðallega að missa af brennunni og brennuvargnum…))
.

.
Þessir tveir slógu ekki hendinni á móti því að fara í setbekkjaverkefnið
því að því fylgdi tryllitækjatúr og smá samsetningarvinna
.
Máltækið segir „Margur er knár þó hann sé smár“
og ekki misskilja neitt, ég við að þetta er ekki stærsta gerð af hjóli
sem þeir voru á..)))