Kerbúðin lokar 3. ágúst 2014 – Kveðjupartí verður kl. 15:00

Kerbúðin hefur vakið athygli víða og margir hafa lagt leið sín þangað til að versla, aðkomufólki sem sér búðina finnst þetta stórskemmtilegt uppátæki og það hefur jafnvel sést til fólks sem leggur bílnum utan við rafhliðið og labbar í búðina.

Síðustu tvö sumur hafa verið erfið í reksti, sennilega er það vegna veðurs eða það er allavega trú rekstraraðilanna. Kerbúðin á sína tryggu viðskiptavini en vantar auðvitað fleiri…)))

Nú er komið að lokun búðarinnar og pínu óvíst með framhaldið, Kerbúðina langar að bjóða upp á smá kaffihúsastemmingu sunnudaginn 3. ágúst kl. 15:00 en þar verður í boði algjörlega frítt kaffi og skonsur með rækjusalati.

Til að poppa upp stemminguna og til þess að fólk geti jafnvel fundið eitthvað t.d.  jólagjafir þá fylgja hér nokkrar myndir af því sem í boði verður.

Tóta býður upp á:

tota

margar gerðir að fallegum barnafatnaði í glaðlegum litum sem hún hannar og saumar auðvitað sjálf

10468124_779859085397896_4901873948239546632_o

falleg kerti sem gleðja rómantísk hjörtu – uglur eru inni í dag

10552648_791210510929420_3638294356161235968_n
Handgerð armbönd sem prýða alla úlnliði

7071_560242237359583_297823700_n

og auðvitað lumar „Mamma terta“ á einhverju ætilegu „surprice“


Sóley og Gunni bjóða upp á

17500_10200572245538777_733528587_n

 þessa fallegu lest sem heitir því fallega nafni „Austurlandahraðlestin“

photo 1

Allir þurfa heimili og fuglar líka –  hér er eitt fuglahús sem býður eftir nýjum eiganda

photo 3

þennan stuðbolta sem gæti jafnvel tekið lagið með Kristjáni

photo 2


Í boði Gunnu er

gunna
Silkipúði með ásaum sem hlotið hefur nafnið „Funheit ást“

P1020860
Málverk „Allir fuglar heimsins ?“

fuglar
Klippimynd sem ber það fallega nafn „Ylmur Kerhraunsins

ylmured
Síðast en ekki síst það sem henni er ofarlega í huga allt sumarið verkið „Fjarska fallegar“

P1020863

Það er von okkar og ósk að Kerhraunarar gefi sér tíma til að kíkja í Kerbúðina nk. sunnudag og taka þátt í kveðjupartíinu og skoða vöruúrvalið og gera góð kaup.