G&Tdagurinn 25. maí 2013 – Pyslupartý

Það verður að segjast eins og er að gróðursetningadagurinn 2013 var sá votasti til þessa og myndirnar bera þess merki að fólki fannst hálf hráslagalegt að vera úti, þó runnu pylsurnar ljúflega niður og ef regnið vætti ekki nóg þá var hægt að fá ýmsa drykki til að skola pylsunum niður.

Enn og aftur buðust Sóley og Gunni til að lána pallinn sinn og færum við Kerhraunarar þeim okkur bestu þakkir fyrir, það er gott að eiga þau að og Sóley var vígaleg með húfuna á grillinu.

 

 

Myndirnar sýna að veðrið var okkur ekki mjög hliðhollt þetta árið
en hvað með það, það kemur ár eftir þetta ár.

Hilmar er enn að „pósa“

Þrjár konur að stjórna einu grilli, veit það á gott ?
Létt yfir Kollu
Matur og þá er ekkert annað gert
Skál
Finnsi með „Frónkexbuff“ og Ásgeir með „Rannsakandi augnaráð“
Takið eftir, Rut ætlar sér að ná í uppskriftina
Eyjapían er hugsi
„Hvar í andsk… ertu Smári, ég þarf að tala við þig“ eða
er Garðar að þruma yfir fólkinu ?
Einn af þeim sem er á myndinni er nýbúinn að fá bílpróf, hver ??
Nágrannar
„Nýbúarnir“ – eru þeir alveg steinhissa á þessu ?

Guðrún og Hilmar á 55

Elín og Ásbjörn daginn fyrir puðið

Gunnar gestgjafi

Smári syngur:
Ertu þá farinn ertu þá farinn frá mér. Hvað ertu að gera ? Hvert liggur mín leið ?“

Garðar syngur:
„Æ, ég fer og ég kem aldrei aftur, um það veit hver einaasti kjaftur“
en í alvöru Smári það verður sameining á A, B, C og D svæðum, vittu til.

Hvað er að gerast stelpur ?

Rut er enn með rennandi „Heimatilbúið gróðursetningavatnt“ í æðunum…))
Einn tryggasti aðdáandi Kerhraunsins
Ungdómurinn
Málin rædd
Jói að fæða afkvæmið
Emilía farin en hvað heitir þessi ?
enn er verið að ræða, enda nágrannar
Enn þrumar Garðar yfir fólkinu
Verið að plana morgundaginn en mikið verk framundanTakk fyrir góðan dag, kæru Kerhraunarar