Formanns hugleiðingar og hvatning til allra Kerhraunara

Um helgina var haldinn fyrsti fundur nýrrar stjórnar í Kerhrauni. Við ræddum helstu viðfangsefni stjórnar á komandi ári og komum víða við enda í mörg horn að líta á stóru heimili.  Ég vil hvetja ykkur, kæru félagsmenn, að fylgjast vel með vinnu okkar í stjórninni. Hikið ekki við að koma með góðar ábendingar og hugmyndir, taka virkan þátt í sameiginlegum verkefnum og viðburðum.

Með kveðju og óskum um gott samstarf Fanný Gunnarsdóttir, formaður