Nú skal gluggað í minningabók myndanna og upp kemur árið 2004, verður að segjast að það ár var skemmtilegt og mikið um að vera, enda verið að leggja grunn að góðri Kerhraunsframtíð. Mikið hefur breyst og í eftirfarandi myndaröð sanna myndirnar að þetta var þess virði að puða og puða og mikið hefur nú breyst í Kerhrauninu okkar.
Gott var að fá þak yfir höfuðið annað sumarið okkar
Þetta var nú hálfgerð eyðimörk, ekki satt?
Vísir að tjörn enda bráðnauðsynlegt að vökva
Þetta lofar góðu, en margur hélt okkur snarvitlaus
Enginn hafnar svona útsýni – takið eftir að fá hús eru á svæðinu
Allt til alls í kúlunni að okkar mati
Yngri og alsæl…))))
Svona í lokin þá er mynd af húsinu við hliðina á okkur og gaman fyrir Hrein að sjá hversu vel hefur dafnað hjá þeim hjónum.