Það er alltaf eitthvað að frétta úr Kerhrauninu, nú eru það framkvæmdirnar sem voru sl. helgi.
Til verksins var fenginn enginn annar en þessi maður á myndinni sem heitir „H أ ل ل ش ر„, hann þótti skara fram úr þeim hópi sem í boði var og er með áratuga reynslu að baki í framkvæmdum sem þessum bæði á íslenskri sem erlendri grundu…)))
.
Hann mætti á staðinn með frítt föruneyti, var snöggur að koma verkinu af stað, menn fengu talstöð í hönd og þannig urðu þeir að hafa samskipti sín á milli meðan á verkinu stóð, auk þess sem hann greip iðulega inn í ef þurfa þótti.
Svona til að vera ekki bara að bulla, þá er best að segja það strax að þessar framkvæmdir voru til þess fallnar að gera tvö bílastæði við stóra útivistarsvæðið þá er þetta enginn annar en Hallur okkar Ólafsson, Kerhraunari með meiru.
Þessi stæði voru á skipulagsuppdrættinum sem gerður var árið 2010 og oft hefur vantað stað til að setja efni á þegar aðrar framkvæmdir eru og svo koma þau sér vel um Versló.
.
til að mæla út fyrir bílastæðunum,
allt gekk vel og svæðið klárt fyrir uppgröft.
Verktakinn mættur og tekur stöðuna, Börkur undir stýri og auðvitað
var líka grafa með í för
Byrjað var á því að taka fyrir bílastæðinu á langa kaflanum
Hallur og Finnsi að fylgjast með
stuttum fyrirvara og gera þetta framkvæmanlegt
.