Þjóðhátiðin hafði farið vel af stað, börnin búin með nammið og djúsinn og orðin mjög spennt að geta haldið áfram að leika sér, enda komið að þríþrautinni og ekkert annað að gera en að byrja.
Þrautin fólst í því að tveir og tveir kepptu saman, fyrst þurfti að skríða undir net, þegar því var lokið þurfti að stökkva yfir tvær stangir og síðast að fara með lappirnar inn í hringi er lágu á jörðinni.
Þetta leystu öll börnin með stakri prýði, sumir þurftu smá aðstoð en þá komu mömmur, pabbar, afar eða ömmu til hjálpar.
.
Eftirfarandi myndir sýna íþróttafólk framtíðarinnar, börnin voru á öllum aldri og þau stóðu sig öll mjög vel, það verður gaman að sjá þau á næsta ári. Til hamingju krakkar.
Þessi reif af sér húfuna og hljóp af stað enda með flott hár
Litla prinsessan sat föst í netinu, afinn var fyrstur á staðinn og spurði „Á afi að hjálpa þér ‘“
„Já, sagði litla prinsessan“,
tveir aðrir mættu til að kanna aðstæður og saman tókst þeim að losa hana
og mikið var hún frelsinu fegin,
leit á afa sem var orðinn spenntur, sá að pabbi var líka mættur,
hljóp því af stað og kom í mark með stæl
Stórmeistardóttirin ákveðin á svip, vill sigra
.