Kerhraun

Samþykkt um hundahald í Grímsnes- og Grafningshreppi

Vegna fyrirspurna um hundahald þá er hér að neðan samþykkt Grímsnes- og Grafningshrepp um hundahald sem tók gildi 13. janúar 2012.

1. gr.

Hundahald í Grímsnes- og Grafningshreppi sætir þeim takmörkunum sem fram koma í samþykkt þessari. Fyrir hönd sveitarstjórnar annast eftirlitsmaður á hennar vegum fram­kvæmd og eftirlit samkvæmt samþykkt þessari í umboði og undir eftirliti heilbrigðis­nefndar Suðurlands.

2. gr.

Hundahald í Grímsnes- og Grafningshreppi er háð eftirfarandi skilyrðum:

  • Eigandi hunds skal láta örmerkja hund sinn hjá dýralækni og skrá hann á skrif­stofu sveitarfélagsins.
  • Eigendur hunda skulu hafa hunda sína ábyrgðatryggða hjá viðurkenndu trygg­ingafélagi vegna tjóns sem hundarnir kunna að valda. Fyrir 31. desember ár hvert skal leggja fram staðfestingu þess að tryggingin sé í fullu gildi.
  • Hundurinn skal aldrei ganga laus á almannafæri, heldur vera í fylgd með ein­hverjum sem hefur fullt vald yfir honum. Eigi er leyfilegt að fara með hund inn í skóla­hús, opinberar byggingar, matvöruverslanir eða aðra staði þar sem matvæli eru höfð um hönd. Umráðamaður hunds skal hreinsa tryggilega og án tafar upp saur sem hundurinn skilur eftir sig á almannafæri í skipulögðu þéttbýli eða sam­þykktum frístundabyggðum.
  • Hundaeigandi ber ábyrgð á því að hundur hans raski ekki ró íbúa sveitarfélagsins og sé hvorki þeim né öðrum sem um sveitarfélagið fara til óþæginda með tilliti til hávaða, óþrifnaðar, eyðileggingar verðmæta eða slysahættu.
  • Ef sótt er um leyfi til að halda hund í íbúð í fjöleignarhúsi skal skriflegt samþykki 2/3 þeirra íbúðareigenda sem hlut eiga að máli, þ.e. eru í sama inngangi, stigagangi eða öðru sameiginlegu húsrými, fylgja umsókninni, sbr. 33. gr. a. og 41. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús.
  • Hundaeiganda ber að öðru leyti að fara að lögum og reglum er hundahald varðar, s.s. reglum um árlega hreinsun hunda og reglugerð nr. 1077/2004 um aðbúnað og umhirðu gæludýra og dýrahald í atvinnuskyni. Fyrir 31. desember ár hvert skal leggja fram staðfestingu á því að hundur hafi verið hreinsaður en ef það bregst getur sveitarstjórn látið hreinsa hundinn á kostnað eigandans.
  • Hundar á lögbýlum mega ganga lausir á landareign eigenda sinna. Að öðru leyti skulu slíkir hundar háðir ákvæðum þessarar samþykktar.

Hvolpar undir þriggja mánaða aldri eru undanþegnir samþykkt þessari.

Skylt er að tilkynna alla hunda sem dvelja í sveitarfélaginu til skamms tíma og eru skráðir hjá öðru sveitarfélagi. Ef hundur dvelur lengur en 30 daga á 12 mánaða tímabili er skylt að skrá hann á skrifstofu sveitarfélagsins sbr. 1. tölulið.

3. gr.

Við brot á skilyrðum skv. 2. gr. skal fjarlægja viðkomandi hund. Eigandi hundsins fær þá, ef um minni háttar brot er að ræða tækifæri til að leysa út hundinn gegn greiðslu þess kostnaðar sem á hann er fallinn, sbr. gjaldskrá sveitarfélagsins. Sé um að ræða alvarleg eða ítrekuð brot er viðkomandi hundur tekinn af skrá sveitarfélagsins og ekki er lengur heimild fyrir eiganda hans að halda hund í sveitarfélaginu. Sé hunds ekki vitjað innan sjö daga frá því að eiganda var tilkynnt um handsömun hans má aflífa hundinn, enda sé eigandi hundsins upplýstur um hvað vanræksla á að vitja ekki um hundinn getur haft í för með sér. Yfirvöldum sveitarfélagsins er ekki skylt að geyma skráðan hund lengur en tíu daga frá handsömun hans og er heimilt að láta aflífa hundinn að þeim tíma liðnum. Allur kostnaður við handsömun, geymslu og aflífun hundsins greiðist af eiganda.

Hættulega, leyfislausa hunda og þá hunda sem ganga lausir á almannafæri skal handsama og færa í geymslu. Heimilt er að láta aflífa hættulega hunda þegar í stað sbr. 8. gr. reglugerðar nr. 1077/2004.

Handsömun á óskráðum hundi skal auglýst. Sé hunds ekki vitjað innan tíu daga má láta aflífa hann. Komi síðar í ljós hver eigandi hundsins er má krefja hann um greiðslu kostn­aðar.

Sveitarstjórn er hvenær sem er heimilt að afturkalla skráningu á einstökum hundum eða öllum hundum telji hún þess þörf.

4. gr.

Samþykkt þessi gildir einnig, eftir því sem við á, fyrir eigendur sumarhúsa og frí­stunda­byggðar í sveitarfélaginu.

5. gr.

Sveitarfélaginu er heimilt að innheimta gjald vegna kostnaðar sem hlýst af samþykkt þessari. Gjaldið skal ákveðið í gjaldskrá sem sveitarstjórn setur að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar, skv. ákvæðum 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng­unarvarnir. Gjöld mega ekki vera hærri en sem nemur rökstuddum kostnaði við veitta þjónustu eða framkvæmd eftirlits. Í gjaldskrá skal einnig ákveðið handsömunar- og geymslu­gjald sbr. 3. gr. Sveitarstjórn skal láta birta gjaldskrá í B-deild Stjórnar­tíðinda.

6. gr.

Eigendur eða forráðamenn hunda sem brjóta gegn ákvæðum samþykktar þessarar skulu sæta skriflegri áminningu og gefinn hæfilegur frestur til úrbóta. Ef eigandi eða forráðamaður hunds vanrækir skyldur sínar eða brýtur ítrekað gegn ákvæðum sam­þykktar þessarar eða öðrum reglum sem gilda um hundahald getur sveitarstjórn bannað viðkomandi að halda hund og látið fjarlægja hundinn.

Brot gegn samþykkt þessari varðar sektum rúmist þau jafnframt innan refsiákvæða, hlutaðeigandi laga, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Skulu þau brot sæta þeirri málsmeðferð sem boðin er í lögum nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

7. gr.

Samþykkt þessi staðfestist hér með samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Samþykktin gildir frá birtingu hennar í B-deild Stjórnartíðinda. Frá sama tíma fellur úr gildi samþykkt nr. 1094/2009 um hundahald í Grímsnes- og Grafn­ings­hreppi.