Áramótin marka tímamót. Þau eru endapunktur á tímaskeiði og við lítum um öxl. Við spyrjum okkur, var síðasta ár gott ár? Það fer auðvitað talsvert eftir því hver er spurður og það getur líka farið eftir því á hvaða sjónarhóli hann stendur þegar hann svarar. Sami einstaklingur getur þannig líklega svarað spurningunni á fleiri en einn veg – allt eftir því við hvað hann miðar.
Við skulum ganga til móts við nýtt ár með jákvæðu hugarfari – huga að velferð þeirra sem standa okkur næst – án þess að gleyma þeim sem eiga um sárt að binda.
Eigið ánægjuleg áramót kæru Kerhraunarar