Október kominn og enn er verið að – „Hjónadyngjan“ rís

Eftir smá hnökra í byrjun þá er komið fullt skrið á bygginguna hjá Sóley og Gunna, þeir sem til þeirra þekkja vita að þau láta hvorki veður né vind stoppa sig ef eitthvað stendur til.

Fjölskyldan safnaðist saman í dag, laugardaginn 27. október, bretti upp ermum, eða þannig, hafist var handa við vinnu í grunninum og það verður gaman að fylgjast með framvindu byggingarinnar. Í kvöld verður örugglega sungið og spilað.