Síðasti skráningardagur í dag – ÞÍN SKRÁNING SKIPTIR SKÖPUM

Ekki eru nema 8,5 klst þar til skráningu lýkur fyrir heitu vatni. Eftir daginn í dag mun nefndin koma saman og leggja á ráðin með framhaldið.

Þau ykkar sem eruð enn í vafa þurfið að leggjast undir feld til 20:00 í kvöld og kanna hvort ekki er enn möguleiki á að vera með og skrá sig allavega fyrir tengiréttargjaldi.

Eitt er víst, við viljum ekki þurfa að hafa þetta svona í framtíðinni eins og myndin sýnir, ekki satt?