Áríðandi skilaboð frá íbúum Heimaeyjar – Hjálpið þeim að losna við allt þetta ryk

.
Í friðsælli sveit sem okkar þá er oft eins og tíminn standi í stað og frekar fátt sem geti raskað ró manna við slíkar aðstæður, samt er komið að því að Heimaeyjarfólkið verður að senda okkur hinum í Kerhrauninu áríðandi skilaboð.

Hvað er til ráða þegar ástandið er orðið þannig að þau geta varla verið utandyra, þurfa sífellt að vera að skipta um vatn í pottinum, sakna þess að geta ekki verið berfætt á pallinum og sjá varla hvort annað og allt er þetta tilkomið vegna ryks sem er þau alveg að drepa. 

                                                Skilboðin eru því þessi:

    „Vinsamlegast sýnið tillitsemi þegr keyrt er á vegum við aðstæður sem þessar“

Vonum að „Regnguðinn“ sýni okkur helst strax hvers hann er megnugur og skvetti duglega úr sér og þá ætti rykið ekki að angra okkur á meðan.

Þetta er allt sem segja þarf