Þá var komið að brennunni sem hófst kl. 21:00 og eins og allir vita þá var Elfar brennustjóri og stóð sig með prýði þó einhvar hafi haft orð á því að hann hefði horfið skyndilega en ekki veit fréttaritarinn neitt um það. Brennan vakti athygli þar sem hún var í stærra lagi miðað við 2 síðustu árin og eina sem þarf að þjálfa upp eru gítarleikarar og smá kór og þá erum við í góðum málum næstu 5 árin.
Þema brennunnar þetta árið var eitthvað úr náttúru Kerhraunsins og það voru margar góðar hugmyndir sem litu kvöldsins ljós sem er gaman þar sem það sýnir að fólk vill leggja eitthvað að mörkum að gera kvöldið skemmtilegt.
Stjórn hafði lagt vinnu í að gera eitthvað smávegis þetta kvöld þar sem gítarinn vantaði og vonandi tókst það þokkalega. Rétt fyrir kl 21:00 fór fólk að streyma að og þá kom fljótt í ljós að úr vanda yrði að ráða þegar til verðlaunaafhendingar kæmi.
En myndirnar munu fara í minningabanka okkar Kerhraunara um ókomin ár það eitt er víst og mun ég reyna að skrifa við þær einhver nöfn þó það verði ekki fullkomið.
Sigurður kom með stæl á brennuna, öskrandi yfir hæðina eins og góðum indíána sæmir
og var með „grasið í skónum“ en samt ekki á eftir mér…(((
Stór hluti af Ásgeirs Karlssonar fjölskyldu hér að ofan, hvar er Stína eða er þetta ný kona, nei joke
Frú formaður Fanný Gunnarsdóttir er eins og engill með þetta á höfði sér
Viðar Guðmundson alltaf jafn sætur
Hrafnhildur blómleg, hún er kona Sigga indíana…))), bara til að vita hver er hvað
Hans og Tóta, Hans nýorðinn 60 ára
Huldumaðurinn og Þorgeir
Ómar Björnsson, barnabörn og Guðný
Elfar brennustjóri , Lúlli sem hefur áhuga á að stofna „Gítarskóla Kerhraunsins“ og Lovísa
Ég, sem ber ábyrgð á allri þessari vitleysu sem hér fer inn
Aha, Helgi maðurinn hennar Úllu og 10 barna faðir
Skólasystir Úllu og dóttir hennar
Hér má sjá fylgdarlið þessarar yndislegu konu í fjólubláu úlpunni en hún sem heitir Fanney
Er VEGAMÁLASTJÓRINN ekki farinn að ræða málin við Sigga indíána, eða er hann bara
farinn að hugsa um að skjóta upp flugeldum
Hjónakornin Lára og Viðar, Lára sá um að spila tónlistina
Á myndinni má sjá Elfar, Alfreð, Halldór, Svandís og Regína
Þegar hér var komið sögu þá vita allir að fram fór verðlaunaafhending fyrir „MINI Ólympíuleika barna“ 2019
Nú var komið að því að gleðja þá sem voru 18 ára+ og vita hvort þeir peppuðust ekki eitthvað upp
ef þeir fengu að smakka „Rabbabaravín“ sér útbúið af Hans og Gunnu.
Áður en því var dreift hefði verið gott að hafa kexið hennar Úllu það er svo gott með þessum mjöð
en var sem sé ekki í boði og því fylgir uppskrifin bara með
ÚLLU BOLLUR
1 kg hveiti
5 dl vatn,volgt
100 gr smjörliki, mjúkt
100 gr sykur
1 bréf þurrger
1 egg
1/2 teskeið salt
Blanda þurrefni saman.
Bæta við öllu hinu
Láta standa 1/2 – 1 kl.tíma og búa til bollur
Láta standa hálf tíma og baka svo í 15 mín við 200°c
Hér má sjá formanninn leggja blessun sína yfir bláa dallinn sem í var „Rabbabaravínið“
Það hafa streymt inn fyrirspurnir hvernig hægt sé að gera svona góða blöndu sem við þrjú urðum svo glöð af
UPPSKRIFT
1 blár og hvítur plastdallur
1 kg ís
1 lítri REYKA
4 ltr Fanta Exotic
Blanda slurk af öðrum Vodkategundum eftir smekk
en ekki hætta að smakka fyrr en manni finnst þetta gott
Alfreð bendir Regínu og Halldóri á hvar hann sé með lóð, eða þannig – Hafrúnu finnst þetta eitthvað skrýtið
Elfar brennustjóri með Svandísi
Loksins var komið að G&T deginum, Jóni stóð allatf í þeirri trú að
G&T þýddi Gin&Tonic dagurinn
og eins og sjá má þá eru þau í stuði, Harpa, Jón og Sveinn Örvar
Dagný Erla konan hans Þorgeirs og sennilega dóttir ?
Svakalega geta sumir verið sætir og Sveinn Örvar hvað er að gerast með þig?
Þau eru vist ekki hjón en hann er víst voða mikil pempía að nota annarra manna glös…)))) en lét sig hafa það
Ásgeir, Stína, Lúlli, Lovísa Smári og Rut – ÖLL GOLFMEISTARAR
Held ég giski á að þetta sé Anna Valborg
Menn geta líka verið alvarlegir
Gummi og Viðar – Finnsi minn í baksýn
Gréta og tengdasonurinn – amma að stjórnast
Steinunn sagðist hafa gleymt að mála sig en mér finnst hún svo sæt svona ómáluð
Er þetta ekki Kristinn Óli Hallson og synir ???
OMG hvað var erfitt að ná mynd af VEGAMÁLASTJÓRANUM – Selfie reynd með þessum árangri
Hrafnhildur og Hrefna í hrókasamræðum um hallirnar sínar
Ó já ég skil hallarfrýr mínar góðar
Fanney að dansa og Svandís að strjúka
Já sumir eru bara alveg standandi hissa á öllu þessu stússi á brennunni
Nú var komið að verðlaunaafhendingu stjórnar sem hafði ákveðið að gleðja þá eldri líka, það var því vel við hæfi að byrja á því að kalla þau Helga og Úllu upp en eins og allir vita þá stóðu þau sig með sóma á „MINI Ólympíuleikum barna“ og áttu því svo sannarlega verðlaunapening skilið.
Okkur fannst að skemmtileg og frumleg atvik sem gerast hér í Kerhrauninu yrði að verðlauna enda ekki á hverju strái menn sem hugsa í lausnum og í þetta skipti var það Viðar Guðmundsson sem fékk verðlaunapening og viðurkenningarskjal fyrir snjalla hugmynd.
Meðan á þessari athöfn stóð tóks Halli að trufla okkkur gömlu konurnar allverulega og Guðrún varð stjörf eins og sjá má
Skaut hann upp flugeldum öllum til mikillar skemmtunar og á meðan reyndi Gunna að þegja
Takk Hallur minn fyrir þetta SHOW
Hjónakornunum Sigurði og Hrafnhildi voru veitt verðlaun fyrir frumlegasta og náttúrlegasta gerfið – vel gert
Síðan kom upp ansi skondin frásögn, tengdafaðir þessa unga manns upplýsti stjórn að hann hefði verið farinn
að sofa hjá 3ja ára, humm hvað meinar þú sagði formaðurinn, „þetta er alveg satt, þau hittust 3ja ára í sumarbústað við hliðina á okkar
og þá byrjaði þetta og 13. ára voru þau farin að sofa saman“ sagði tengdapabbinn og ekki lýgur hann.
Verðlaunapeningur strax um hálsinn á drengnum fyrir frábæra náttúru…))))))
Hæ bálið brennur, bjarma á kinnar slær…
Er brennustjórinn týndur???
Síðasti sjens að baka
Þeir feðgar þáðu ekki mjöðinn góða
En það gerði Úlla sem frétti að aðeins væri eftir 1 ltr í plastfötunni og bauðst til að klára
halló, nei nei nei og gekk ég síðasta hringinn og bauð
Margrét og Maren þáðu smá lögg
Ekki vera svekkt Úlla mín, allt bú
Góður hópur
Nokkrar myndir í lokin af Kerhraunurum og CO og takk fyrir kvöldið
Brenna senn á enda og ekkert annað að gera en að enda kvöldið og láta sig hlakka til ársins 2020
Nú bið ég ykkur kæru Kerhraunarar að senda inn nöfn þeirra sem ég veit ekki og líka að senda myndir
af börnunum sem fengu heimsenda verðlaunapeninga svo hægt sé að láta þær á síðuna
Stjórn vill þakka öllum þeim sem lögðu á sig að gera þennan dag ógleymanlegan og vonar að þið hafið notið dagsins á sama hátt og við gerðum og muna að við ætlum að hittast „Á sama tíma að ári“ og þá verður vonandi búið að útskrifa einhverja úr Gítarskóla Kerhraunsins
*