„6. Þungaflutningar í hverfunumVerði félagasmaður valdur að skemmdum á vegum í Kerhrauninu vegna þungaflutninga og/eða framkvæmda, þá skal hann bæta það tjón að fullu og sjá til þess á sinn kostnað, að vegirnir verði aftur eins og þeir voru fyrir tjónið.
Félagsmenn eru minntir á að í gildi eru að öllu jöfnu sérstakar þungatakmarkanir frá 1. apríl til 20. maí en þá er leyfilegur öxulþungi aðeins 3 tonn (sá tími sem frost er að fara úr jörðu). Við sérstakar aðstæður gæti þó þetta tímabil breyst.“
Ef keyrt er á fræing og frost er enn í jörðu og þýða í efsta lagi þá molnar hann
Félagsmenn eyða miklum peningum árlega í að byggja upp vegi í Kerhrauni og það er skýlaus krafa að ALLIR taki tillit til þessara aðstæðna og láti sér ekki detta í hug að fara með þungavinnutæki inn á svæðið.
Verktakar VITA þetta og eiga að vera leiðbeinendur fyrir lóðarhafa ef beðið er um bíla eða vinnuvélar á þessum tíma ársins.