Þau slá ekki feilhöggin börnin í Kerhrauni þegar þau hittast á Versló og gera sér glaðan dag, foreldrar og aðstandendur gátu ekki setið á sér og tókst að vekja barnið í sér til að taka þátt í leikunum af miklum ákafa. Það er ljóst að það er mikið að góðu keppnisbörnum/fólki í Kerhrauninu.
Ási og fjölskylda tóku að sér að halda þessa leika og geri aðrir betur enda ekki á færi allra að halda „Ólympíuleika“ enda gerðu þau þetta með stæl og færum við þeim okkar bestu þakkir fyrir framlagið.
Eftirfarandi myndasýning sýnir gleðina sem ríkti á grasblettinum og „MINI Ólimpíuleikar barna“ í Kerhrauni bara ein STÓR skemmtun og ekki skemmdi það fyrir að veðrið lék við keppendur.
Þetta er samkoma sem má ekki falla niður í framtíðinni enda góður grunnur að byggja á fyrir framtíðar Kerhraunara og framtíð Kerhraunsins
Að lokum fengu börn og fullornir tækifæri til að sýna okkar heimsfræga „HÚ“ og hefur það þá þegar verið birt á heimasíðunni og það er engu logið þegar því er haldið fram að „HÚIГ tóku Kerhraunar með stæ. Sjáumst að ári.