Vegna fyrispurna um hvort hægt sé að koma með steypubíla, steypudælur og gáma á svæðið á þessum tíma þá er því til að svara að það eru þungatakmarkanir í gildi og þær ber að virða enda eru samþykktir félagsins eftirfarandi:
„6. Þungaflutningar í hverfunum
Verði félagasmaður valdur að skemmdum á vegum í Kerhrauninu vegna þungaflutninga og/eða framkvæmda, þá skal hann bæta það tjón að fullu og sjá til þess á sinn kostnað, að vegirnir verði aftur eins og þeir voru fyrir tjónið.
Félagsmenn eru minntir á að í gildi eru að öllu jöfnu sérstakar þungatakmarkanir frá 1. apríl til 15/20. maí en þá er leyfilegur öxulþungi aðeins 3 tonn (sá tími sem frost er að fara úr jörðu). Við sérstakar aðstæður gæti þó þetta tímabil breyst.“
Ef keyrt er á fræing og frost er enn í jörðu og þýða í efsta lagi þá molnar hann
Félagsmenn eyða miklum peningum árlega í að byggja upp vegi í Kerhrauni og það er skýlaus krafa að ALLIR taki tillit til þessara aðstæðna og láti sér ekki detta í hug að fara með þungavinnutæki inn á svæðið.
Verktakar VITA þetta og eiga að vera leiðbeinendur ef beðið er um bíla eða vinnuvélar á þessum tíma ársins, annað er virðingarleysi.
Steypustöðin á Selfossi fer t.d. ekki inn á þungatakmarkanir nema að stjórn sendi samþykkt undirritað bréf.
Til gamans fylgja með táknrænar myndir fyrir það sem ekki má koma í Kerhraunið meðan tímabilið stendur yfir.
Það er því gott að notast eingöngu við hjólbörur og heimasmíðaðann vörubíl eins og er á myndinni hér að ofan.