Stjórn Kerhrauns, félags sumarhúsaeigenda boðar hér með til aðalfundar félagsins árið 2023.
Fundurinn verður haldinn ÞRIÐJUDAGINN 11. apríl nk. í húsnæði Rafmenntar að Stórhöfða 27, (gengið inn að neðanverðu), 110 Reykjavík og hefst stundvíslega kl. 19:30.
Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum félagsins:
1. Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
2. Framlagning ársreikninga 2022 til samþykktar
3. Kosning formanns.
4. Kosning annarra stjórnarmanna.
5. Kosning varamanna.
6. Kosning skoðunarmanns og varamanns hans.
7. Framkvæmda- & félagsgjald 2023 lagt fram til samþykktar.
8. Önnur mál.
a. Stjórn félagsins leggur til breytingar á samþykktum félagsins:
1. Breyting á 1. grein: Nafn félagsins verði Kerhraun, félag frístundahúsaeigenda, Grímsnesi.
2. Breyting á 5. grein: Til aðalfundar aðalfundar skal stjórnin boða með sannanlegum hætti, bréfi/tölvupósti og/eða með auglýsingu á heimasíðu félagsins, www.kerhraun.is með minnst 10 daga fyrirvara.
3. Breyting á 10. gr. varðandi birtingu samþykkta. Í stað þess að senda nýjar samþykktir bréflega til félagsmanna er lagt til að birting uppfærðra samþykkta á heimasíðu félagsins sé fullnægjandi.
ATH! Uppfærðar samþykktir (tillögur) voru sendar í tölvupósti.