Nú styttist í aðalfund félagsins og því sendir stjórn þetta loka útkall fyrir fundinn sem haldinn verður þriðjudaginn 16. apríl kl. 19:30 í Rafmennt, Stórhöfða 27 – gengið inn að neðanverðu.
Í tilefni af 30 ára sögu Kerhrauns verður boðið upp á góðar veitingar og Fanný Gunnarsdóttir mun kynna fyrir okkur drög að sögu Kerhrauns.
Stjórn hvetur alla áhugasama um stjórnarsetu til að stíga fram og senda inn nafnið sitt á formadur@kerhraun.is. en skv. lögum þarf að kjósa árlega um tvo stjórnarmenn til 2ja ára og formann til 1 árs.
f.h. stjórnar,
Hörður Gunnarsson, formaður
AÐALFUNDARDAGSKRÁ
Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum félagsins:
1. Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
2. Framlagning ársreikninga 2023 til samþykktar
3. Kosning formanns.
4. Kosning annarra stjórnarmanna.
5. Kosning varamanna.
6. Kosning skoðunarmanns og varamanns hans.
7. Framkvæmda- & félagsgjald 2024 lagt fram til samþykktar.
8. Önnur mál.