Senn koma jólin og þá þarf að huga að jólaverkum Kerhraunsins en þau eru aðallega fólgin í því að kveikja á jólatrjánum. Það er gaman að segja frá því að stóra grenitréð hefur stækkað um heilar 3 seríur, þess vegna varð að taka gömlu seríuna af og reyndist hún vera ónýt og splæsa í nýjar seríur, svo fékk litla myndavéla jólatréð líka seríu og er óhætt að segja að aðkoman í Kerhraun sé okkur til sóma.
Kveikt var á jólatrjánum laugardaginn 10. desember 2016
- Kerhraunið í bláma dagsins þann 16. nóvember 2016
- ATH! Breyting um áramót á opnunartíma gámastöðvar