Þungatakmarkanir taka gildi 1. apríl og gilda til 20. maí 2020

Nú er að skella á sá tími ársins þegar þungatakmarkanir taka gildi og að vanda er gildistíminn frá 1. apríl til 20. maí 2020.Vegna tíðra fyrispurna um hvort hægt sé að koma með vöru- og steypubíla, steypudælur og gáma á svæðið á þessum tíma þá er því til að svara að það eru þungatakmarkanir í gildi og þær ber að virða enda eru samþykktir félagsins eftirfarandi:

„6. Þungaflutningar í hverfunumVerði félagasmaður valdur að skemmdum á vegum í Kerhrauninu vegna þungaflutninga og/eða framkvæmda, þá skal hann bæta það tjón að fullu og sjá til þess á sinn kostnað, að vegirnir verði aftur eins og þeir voru fyrir tjónið.

Félagsmenn eru minntir á að í gildi eru að öllu jöfnu sérstakar þungatakmarkanir frá 1. apríl til 20. maí en þá er leyfilegur öxulþungi aðeins 3 tonn (sá tími sem frost er að fara úr jörðu). Við sérstakar aðstæður gæti þó þetta tímabil breyst.“

Ef keyrt er á fræing og frost er enn í jörðu og þýða í efsta lagi  þá molnar hann

Félagsmenn eyða miklum peningum árlega í að byggja upp vegi í Kerhrauni og það er skýlaus krafa að ALLIR taki tillit til þessara aðstæðna og láti sér ekki detta í hug að fara með þungavinnutæki inn á svæðið.

Verktakar VITA þetta og eiga að vera leiðbeinendur fyrir lóðarhafa ef beðið er um bíla eða vinnuvélar á þessum tíma ársins.